Karfan er tóm.
Hve lengi á að gefa Puppy GF Poultry? Það fer eftir stærð tegundarinnar!
- Smáar hundategundir nota BELCANDO Puppy GF Poultry til allt að 12 mánaða aldurs.
- Meðalstórar og stórar hundategundir nota BELCANDO Puppy GF Poultry eingöngu til 3/4 mánaða aldurs og færast þá yfir á JUNIOR fóður.
Innihald: ferskt alifuglakjöt (40 %); þurrkað alifuglaprótein, lítil aska (16 %); amarant (14%); kartöflusterkja; baunamjöl; fiskimjöl úr sjávarfiski (5 %); alifuglafita; möluð ljósáta (smákrabbar, 2,5 %); gelatín, vatnsrofið (2,5 %); þurrkað ölger (2,5 %); þurrkuð egg; þurrkaðir carob sprotar, þurrkaðar sykurrófur, sykurskertar; díkalsíumfosfat; laxaolía; vatnsrofin fuglalifur; chia fræ; natríumklóríð; kalíum klóríð
Næringarinnihald: Prótein 29,5 %; Fita 19 %; Hrá aska 8 %; Hrátrefjar 2,5 %; Raki 10%; Kalk 1,4%; Fosfór 1,1 %; Sodíum 0,35%
Hvolpafóður án korns með mikið af alifuglakjöti. Margir ræktendur og hvolpaeigendur kjósa að fóðra með kornlausu hundafóðri. Þess vegna er mikilvægt að velja vel fóðrið strax í upphafi. Ferskt kjúklingakjöt og vandlega valin hráefni stuðla að því að BELCANDO Puppy GF Poultry er auðmelt og auðþolað af ungum óþroskuðum mallakútum. Grænmetissamsetningin er orkuríkt amaranth, baunir og kartöflur sem eru bæði stútfull af næringarefnum og veita góða mettunartilfinningu. Bragðgóð sósa umlykur fóðrið ef það er bleytt upp í volgu vatni og hún hvetur hvolpinn til að byrja að éta fasta fæðu. Þetta gerir fóðrið jafnframt lyktar- og bragðmeira. Notað frá 6-8 vikna aldri. Notkun hvolpafóðurs fer eftir stærð tegundarinnar, smáar hundategundir nota BELCANDO Puppy GF Poultry til allt að 12 mánaða aldurs. Meðalstórar og stórar hundategundir nota BELCANDO Puppy GF Poultry eingöngu til 3/4 mánaða aldurs og færast þá yfir á Junior fóður, til dæmis BELCANDO®Junior GF Poultry en það eru aðeins stærri bitar og hefur næringargildi miðað við annað þroskastig. Fyrir hvolpa af mjög stóru kyni (sem verða þyngri en 40 kg sem fullorðnir) mælum við þó alltaf með BELCANDO®Junior Maxi.
Próteininnihald fóðursins er 29,5 % – sem skiptist í 80% dýraprótein + 20% jurtaprótein
ProVital – styrkir ónæmiskerfi hundsins með frumuhlutum (Beta glucane) unnum úr náttúrulegum sveppum.
ProAgil – eykur brjóskmyndun í liðum og hindrar liðaskaða og liðavandamál með gelatín-kollagen hydrolísati.
BELCANDO Puppy GF Poultry er framleitt án:
- Kornvara (glúteinfrítt)
- Soja
- Mjólkurafurða
Ráðlagður dagskammtur:
*Þyngd fullorðins hunds
**Mælt er með að færa sig rólega yfir á BELCANDO®JUNIOR fóður á 4.mánuði (eingöngu fyrir stærri tegundir)
***Þar sem ungir hundar hafa mismunandi þarfir eftir tegundum þá eru skammtastærðir breytilegar um +/- 20 %.
Gott að bleyta upp í: Til að auðvelda skiptin yfir á fasta fæðu hefur BELCANDO® Puppy GF Poultry "sósu-skel". Blandaðu BELCANDO® Puppy GF Poultry varlega við volgt vatn (40-50 °C) 3 á móti 1 og þá verður til girnilegt mauk, sem örvar hvolpa til þess að byrja á fastri fæðu. Seinna getur BELCANDO® Puppy GF Poultry svo verið gefið þurrt.